Tómas útskrifaður strax að lokinni aðgerð: engin hjartaaðgerð í dag, annan daginn í röð, vegna skorts á gjörgæsluplássum

„Í dag var engin hjartaðgerð vegna skorts á gjörgæsluplássum, annan daginn í röð. Þá gafst tími til að heimsækja Dísarkot og kenna nemendum þar skurðlæknisfræði. Það er jú alltaf verið að stytta skyldunámið og ekki seinna vænna en hefja kennsluna strax við 2ja ára aldurinn.“

Þetta segir frægasti hjartaskurðlæknir landsins, Tómas Guðbjartsson en hann greinir frá þessum alvarlegu tíðindum á samfélagsmiðlum. Þar kveðst Tómas hafa útskýrt hugtök í nútíma læknisfræði eins og fráflæðisvandi og gangainnlagnir og skortur á vistunarúrræðum. Tómas segir:

„Hugtök sem ekki voru til þegar ég lærði mína læknisfræði en eru í hratt vaxandi notkun hérlendis.“

Bætir Tómas við að þetta hafi vakið litla kátínu en bros hafi færst yfir mannskapinn þegar „afi gamli skaffaði öllum skurðstofuhúfu og maska og kenndi að búa um sár.“

Tómas segir að húfurnar hafi þó verið fljótar að fjúka.

„Allir vildu sprauta mig í eyrun - nánast samtímis - sem gekk vel enda með óvenjustór eyru,“ segir Tómas um þessa bráðskemmtilegu mund sem fylgir fréttir og bætir við:

„Hlynur Atli stýrði þessari snarmannlegu aðgerð og útskrifaði mig strax að aðgerð lokinni. Frábær þjónusta á Dísarkoti og hvorki biðlistar né fráflæðisvandi - enda áherslan lögð á að skera upp en ekki niður. Um leið er sloppið við átakanlegar úttektir á þessari gleðideild.“