Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir segir í samtali við Morgunblaðið í dag að vitundarvakning um notkun rafrettna eigi sér stað um þessar mundir. Hann segir nauðsynlegt að rannsaka sjúkdóma tengda þeim betur hérlendis.
Sjúklingar hafa verið lagðir inn á lungnadeild Landspítalans með svipuð einkenni og fram koma í sjúkdómsfaraldri sem hefur hrjáð að minnsta kosti 450 notendur rafrettna í Bandaríkjunum og valdið minnst þremur dauðsföllum. Tómas segir flókið að greina sjúkdóminn vegna þess að það þurfi að útiloka allt annað.
„Í þessum tilfellum hafa sýkingar og önnur ertandi efni verið útilokuð og þetta situr eftir,“ segir hann og bætir því við að athyglin beinist að leysivökva sem sé notaður til að færa efni á við nikótín í lungun.
„Það truflar mann sem lækni að það sé verið að telja fólki trú um að þetta sé hættulaust,“ bætir Tómas við.
Vegna sjúkdómsfaraldsins í Bandaríkjunum hafa heilbrigðisyfirvöld þar í landi varað við notkun rafrettna.