Tómas Guðbjartsson, einn kunnasti hjarta- og lungnaskurðlæknir sest í stólinn gegnt Sigmundi Erni í þættinum Mannamáli á Hringbraut í kvöld og deilir með áhorfendum merkilegri sögu sinni úr lífi og starfi.
Litlu muanði að Tómasi tækist ekki að klára læknisfræðinám sitt á sínum tíma, enda blindaðist hann á öðru auga um nokkurt skeið, en fékk að lokum sjónina sem skilaði honum til fullnaðarprófs í greininni. Fyrsta skurðaðgerðin tókst ekkert endilega svo vel, en þá spýttist blóð yfir allt heila andlit mentors hans sem horfði á Tómas fullur vorkunnar fyrir hönd þessa unga manns sem ætlaði sér að skera upp sjúklinga starfsævina á enda.
Tómas kemur víða við í afar forvitnilegu og upplýsandi spjalli sínu við Sigmund Erni, fjallar meðal annars um það hvernig er að bjarga sjúklingi á ögurstundu, en frægt er þegar hann fór inn í brjósthol sjúklings sem hafði verið stunginn beint í hjartað og pumpaði það í miðri aðgerð, en einnig fjallar hann um þau skipti þegar læknir missir sjúkling sinn sem getur reynt mjög á allt fólkið sem sinnir aðgerðinni.
Hann segir að hann hafi orðið betri læknir en ella sakir þess að sjálfur hafi hann kynnst því að verða fyrir slysi og veikjast alvarlega, en um all langt skeið glímdi Tómas við þrálát veikindi sem að lokum voru tengd við myglusvepp á skrifstofu hans í elsta hluta Landspítalans, en þeirri sérstæðu sögu deilir hann með áhorfendum Mannamáls í kvöld.
Þátturinn hefst klukkan 21:00 og er endursýndur strax klukkan 23:00.