Sendinefnd ESB á Íslandi stóð fyrir strandhreinsun ásamt Bláa hernum ásamt nokkrum sendiráðum Danmerkur, Frakklands, Svíþjóðar og Þýskalands. Að þessu sinni stóð til að hreinsa strandlengju rétt austan við Grindavík. Komumst starfsmenn sendiráðanna hins vegar nánast ekkert niður á ströndina sjálfa því að ótrúlega mikið magn af rusli mætti þeim áður. Langmest af ruslinu var úr sjávarútvegi ásamt miklu magni af rusli úr skotveiðimennsku. Á rúmlega þremur tímum týndu starfsmenn sendiráðanna hátt í tonn af rusli.
Tómas Knútsson, stofnandi Bláa hersins, skrifar á Facebook síðu Bláa hersins að hann hafi aldrei séð annað eins.
„Í fjörunni við Hraun í Grindavík má finna heilu breiðurnar af svona plastrusli. Ég hef aldrei séð annað eins, aldrei.”
Frá stofnun hefur Blái herinn verið fremstur í flokki í hreinsun stranda, hafna, lóða fyrirtækja og fleira á Íslandi. Á tímabilinu hafa farið yfir 65000 vinnustundir í meira en 200 verkefni með 6000 sjálfboðaliðum sem hreinsað hafa yfir 1425 tonn af rusli úr náttúru Íslands.