Í viðtali ViðskiptaMoggans við Davíð Lúðvíksson kemur fram að sprotafyrirtæki eiga erfiðara um vik að afla fjármagns þessi misserin. Davíð fer með mál nýsköpunarfyrirtækja hjá SI-Samtökum iðnararins. Davíð segir vera tómahljóð í flestum framtakssjóðum á sviði nýsköpunar. Frumkvöðlar leita því í meira mæli til einkafjárfesta.
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins er sagður uppiskroppa með fé til fjárfestinga. Í eignasafni sjóðsins eru 30 fyrirtæki og sjóðurinn hefur að meðaltalið átt í fyrirtækjum í níu ár en það er ekki hlutverk sjóðsins að vera langtímafjárfestir í fyrirtækjum. Því þá gæti hann ekki rækt það hlutverk að vera virkur fjárfestir í nýsköpun. Ráðgert er að starfshópur setji fram tillögur um rekstrarform og ráðstöfun eigna Nýsköpunarssjóðs.
Sjóðurinn leggur áherslu á að vinna með öðrum innlendum og erlendum sjóðum og einstökum fyrirtækjum til eflingar á áhættufjárfestingum í væntanlegum nýsköpunar- og sportafyrirtækjum innanlands og utan. Sjóðurinn er í eigu ríkisins og er yfirumsjón hans í höndum þess ráðherra sem fer með viðskiptamál.
Nýsköpunarsjóður stendur nú á vissum tímamörkum enda hefur á tuttugu ára starfstíma sjóðsins orðið breyting á framtaksfjárfestingum. Þetta hefur gerst með tilkomu nýrra fjárfestingafélaga og samlagssjóða. Er framboð á fé því allt annað og meira en áður var. Því kann að vera hagkvæmt að leita samstarfs við einkaaðila um rekstur sjóðsins. Það er í skoðun.
rtá
Nánar www.si.is www.stjornarradid.is