Tölvuþrjótum tókst að svíkja 400 milljónir af hs orku

Brotist var í tölvukerfi HS orku fyrr í sumar og tókst tölvuþrjótum að svíkja út rúmar 400 milljónir úr fyrirtækinu. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Í svari til Fréttablaðsins vegna málsins segist HS Orka hafa væntingar til þess að endurheimta fjármunina að miklum hluta.

Þá segir fyrirtækið að starfsfólk fyrirtækisins hafi nýlega komist að því að tölvuþrjótarnir hafi brotist inn í tölvukerfi þess. „Fyrir snörp viðbrögð bæði starfsmanna félagsins og lögregluyfirvalda hefur félagið ástæðu til að ætla að stóran hluta fjárhæðarinnar megi endurheimta og líklega geti það dregið umtalsvert úr af leiðingum glæpsins,“ segir í svari HS Orku við fyrirspurn Fréttablaðsins vegna málsins.

Forstjóri HS Orku, ásamt fjármálastjóra og tveimur stjórnarmönnum fyrirtækisins, hættu allir störfum í lok síðasta mánaðar.