BBC breska ríkisútvarpið segir að sérfræðingar um netöryggismál segi að spilliforrit eða öllu heldur tölvuveiran sem notuð var til árásana dreifi sér sjálfkrafa á milli tölva innan sömu kerfa. Þannig sér tölvuveiran ólík flestum öðrum tölvuveirum sem treysta á að norendur smelli á hlekki sem sendir eru á milli tölva. Vitað er um ein sjötíu og fimm þúsund tilfelli tölvuveirunar og afbrigðum hennar.
Ráðist er á tölvur sem nota Microsoft hugbúnaða sem orðin er nokkuð gamall. Microsoft vissi að eldveggir þessa hugbúnaðar væru ótraustir og gaf Microsoft þá út uppfærslu á hugbúnaðinum sem styrkti eldveggina. Nú er orðið ljóst að mjög víða hafi menn látið undir höfuð leggjast að uppfæra vélar með þessum hugbúnaði.
Að þessu sinni kom það vörðum í netheiminum í opna skjöldu hve hratt tölvuveiran dreifðist á milli tölva og á milli landa. Hér er líkast til um að ræða fyrstu markvissu hnattrænu tölvuárásina. Árás sem ekki beinist gegn einu fyrirtæki eða einu ríki heldur beindist hún gegn fjölmörgum ríkjum. Tölvuþrjótana er nú leitað.
rtá
Nánar www.bbc.com www.ruv.is www.mbl.is www.vardberg.is