Í gær var greint frá því að Tölvutek hefði hætt rekstri og lokað öllum verslunum sínum. Af þessum sökum missa um 40 starfsmenn vinnuna. Samkvæmt tilkynningu frá eigendum Tölvutek munu þeir óska eftir því við héraðsdóm í dag að fyrirtækið verði tekið til gjaldþrotaskipta í framhaldi af því að ekki náðist samkomulag við viðskiptabanka félagsins um áframhaldandi lánsheimildir.
Tölvutek var stofnað í desember 2006 og var komið með um 50 starfsmenn og tvær verslanir árið 2013 þegar tekin var ákvörðun um að flytja verslunina í Reykjavík í stærra húsnæði og sækja á fyrirtækjamarkað.
Í tilkynningunni kemur fram að flutningarnir og breytingar á rekstri hafi reynst mun dýrari en áætlað hafði verið. „Reyndist hið nýja húsnæði mikill dragbítur á reksturinn, sem hefur fyrir vikið verið í járnum síðustu ár. Eftir taprekstur í fyrra var hlutafé aukið ásamt því að eigendur lögðu til rekstrarfé um síðustu áramót. Mikil vinna var lögð í að bjarga félaginu en eftir að lánsheimildir voru felldar niður varð útséð um frekari tilraunir til þess.“
Einnig er greint frá því í tilkynningunnu að laun hafi verið gerð upp við alla starfsmenn, um 40 talsins. „Mikill missir er að hverjum og einum starfsmanni, en sumir þeirra hafa starfað hjá félaginu frá upphafi.“
Að lokum segir að nær öllum búnaði sem hafi verið í viðgerð hjá Tölvuteki hafi verið komið í hendur eigenda þess. „Reynt hefur verið eftir fremsta megni að lágmarka tjón viðskiptavina af lokun fyrirtækisins, en ljóst að þeir sem eftir sitja verða að gera kröfu í bú þess hjá skiptastjóra.“
Tilkynninguna frá eigendum Tölvuteks má lesa í heild sinni hér:
„Eigendur Tölvuteks munu í dag óska eftir því við héraðsdóm að fyrirtækið verði tekið til gjaldþrotaskipta í framhaldi af því að ekki náðist samkomulag við viðskiptabanka félagsins um áframhaldandi lánsheimildir.
Tölvutek var stofnað í desember 2006 og naut frá fyrsta degi mikillar velgengni með árlegum vexti. Tölvutek var komið með um 50 starfsmenn og tvær verslanir árið 2013 þegar tekin var ákvörðun að flytja verslunina í Reykjavík í stærra húsnæði og sækja á fyrirtækjamarkað. Flutningarnir og breytingar á rekstri reyndust mun dýrari en áætlað hafði verið. Reyndist hið nýja húsnæði mikill dragbítur á reksturinn, sem hefur fyrir vikið verið í járnum síðustu ár. Eftir taprekstur í fyrra var hlutafé aukið ásamt því að eigendur lögðu til rekstrarfé um síðustu áramót. Mikil vinna var lögð í að bjarga félaginu en eftir að lánsheimildir voru felldar niður varð útséð um frekari tilraunir til þess.
Verslunum Tölvuteks var lokað í gær (mánudag) og öllum rekstri hætt. Laun voru gerð upp við alla starfsmenn, en þeir voru um 40 talsins. Mikill missir er að hverjum og einum starfsmanni, en sumir þeirra hafa starfað hjá félaginu frá upphafi.
Nær öllum búnaði sem var í viðgerð hjá Tölvuteki hefur verið komið í hendur eigenda þess. Reynt hefur verið eftir fremsta megni að lágmarka tjón viðskiptavina af lokun fyrirtækisins, en ljóst að þeir sem eftir sitja verða að gera kröfu í bú þess hjá skiptastjóra.
Næstu daga verður hægt að senda fyrirspurnir á spjallrás Tölvuteks á Facebook en þar verður reynt eins og hægt er að veita upplýsingar og leiðbeiningar.
Eigendur Tölvuteks þakka viðskiptavinum fyrir samfylgdina síðastliðin 12 ár og einstaka velvild í þeirra garð frá upphafi.“