Nú síðdegis hefur vefsíða Isavia, sem birtir flugupplýsingar fyrir alla íslenska áætlunarflugvelli, legið niðri í um tvo tíma vegna tölvuárása. Um er að ræða svokallaða ddos árás þar sem framkölluð er umferð á vefsíðuna með þúsundum sýndarnotenda. Með þeim hætti náðu óprúttnir aðilar að gera vefsíðuna óvirka.
Tæknimenn hafa unnið að því að verjast þessum árásum og er vefsíðan nú að mestu sýnileg notendum. Þó getur það tekið lengri tíma fyrir einhverja notendur að komast inn á vefinn.
Ekki er vitað hvort um sé að ræða hefndaraðgerðir vegna þvottaburstaatviks sem átti sér stað á Leifsstöð í dag en Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, segir að tímasetningin sé athyglisverð.