Tölva Hauks Hilmarssonar, sem talið er að hafi fallið í átökum í Sýrlandi á síðasta ári, er komin til Evrópu og er á leið til Íslands á næstunni. Þetta skrifa Eva Hauksdóttir, móðir Hauks, á heimasíðu sinni. Vísir.is greinir frá.
Haukur barðist við hlið Kúrda gegn íslamska ríkinu og er sagður hafa fallið frá í loftárás Tyrkja í Afrin héraði í Sýrlandi þann 24. febrúar á síðasta ári. Eva hefur reynt að hafa uppi á líki hans en þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir eftir ýmsum leiðum hefur það aldrei fundist.
Ögmundur Jónasson, fyrrverandi ráðherra, hefur hjálpað Evu og kom m.a. á beinu sambandi milli fjölskyldu hennar og talsmanns Kúrda hjá Evrópuþinginu. Í janúar stóð Ögmundur fyrir viðburðinum „Kúrdarnir koma,“ þar sem tveir Kúrdar héldu tölu og lýstu þeim raunum sem Kúrdar hafa þurft að upplifa. Í kjölfar þess kom Ögmundur á fundi á heimili sínu með talsmönnum Kúrda. Úr þeim fundi náðist sá árangur að tölva Hauks er nú á leiðinni til landsins. Eva er Ögmundi innilega þakklát.
„Nú vonum við bara að hægt verði að endurheimta gögn. Ég er hóflega bjartsýn á það en það er hugsanlegt. Kannski er þar eitthvað að finna sem varpar frekara ljósi á það sem Haukur var að hugsa og gera í Sýrlandi og þetta ár sem hann var að undirbúa för sína þangað,“ skrifar Eva á heimasíðu sinni.
Hún bætir við: „Mig er farið að langa að gera „eitthvað“ en veit ekki alveg hvað. Langar ekkert nema að skoða þessa tölvu. Finna kannski dagbókarfærslur, kannski skrýtnar hugrenningar eða einhver þessara kvæða sem ég kann ekki nema að hluta. Ég reikna ekki með fleiri orðaskiptum eða fleiri faðmlögum en mögulega eigum við eftir að sjá eitthvað um það hvernig skoðanir hans og hugmyndir breyttust síðasta árið. Kannski, en bara kannski, leynist þar einhver fjársjóður. Kannski ein lítil frásögn. Kannski eitt ljóð enn.”