Stormi spáð á tröllaskaga og skagaströnd

Hin djúpa lægð sem er um 930 millibör verður samkvæmt spá Veðurstofunnar komin norður fyrir land um hádegisbil og verður þá suðvestan átt á öllu landinu.

Stormurinn sem á köflum hefur náð ofsaveðursstyrk hefur leikið um Austurland í morgun en þar fer senn að draga úr veðurhæð. Töluvert tjón hefur orðið, einkum á Eskifirði þar sem 100 ára gamalt hafnarmannvirki er illa farið. Þá hafa fök þokið á Reyðarfirði og víðar. Lögregla varar íbúa austanlands við að vera á ferðinni, einkum á Eskifirði. Fjöldi björgunarsveitarmanna er að störfum.

Spáð er stormi víðar um landið þegar lægðin krappa fer yfir landið eða vindstyrk sem gæti farið yfir 20 metra á sekúndu. Hluti hringvegarins er lokaður og er fólk beðið að leita upplýsinga og fara varlega uns veðrið gengur niður.

Einkum varar Veðurstofa nú við stormi á Tröllaskaga og Skagaströnd.