Tölur um brotthvarf svakalegar

\"Við sjáum að tölurnar eru svakalegar. 141 sem hættir námi vegna andlegra veikinda,\" segir Davíð Snær Jónsson, formaður Sambands íslenskra framhaldsskólakennara á forsíðu Fréttablasins í dag og vitnar þar í nýja skýrslu Menntamálastofnunar um brotthvarf í framhaldsskólum.

Þar kemur fram að talan sem Davíð Snær vísar til nær yfir síðustu haustönn en í heildina hafi rúmlega 750 nemendur hætt í framhaldsskóla í haust sem leið.

Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra segir í sömu frétt að téðar tölur gefi tilefni til að styrkja sálfræðiþjónustu í framhaldsskólum landsins. Hún vinni nú að því með Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra.