Tolli: þetta er landsliðið okkar!

Myndlistarmaður Tolli sem vakti mikla athygli fyrir færslu sína á Facebook um heilbrigðiskerfið eftir að hann hafði gengist þar sjálfur undir erfiða aðgerð í síðustu viku er kominn heim af spítala og skrifar enn um upplifun sína af þjóðarspítalanum.

\"Meðan ég lá með herbergisfélaga mínum upp á deild 13 G á lansanum og við vorum að jafna okkur eftir aðgerðina, horfðum við á 3 landsleiki okkur til ánægju. Þvílíkir leikir, fyrst fótboltinn, þar sem maður fékk að sjá að sigur okkar lá allur í samspilinu, í liðsheildinni þar sem boltinn gekk frá manni til manns eins og á bak við væri ein hugsun stillt inn á eitt markmið, að sigra,\" skrifar Tolli og bætir við: \"Sama gerðist í handboltanum, ein liðsheild , allir sem einn og bara fegurð á að horfa og drullu gaman.\"

Eftir margra tíma aðgerð til að takast á við krabbamein í blöðruhálskirtli skrifar kúnstnerinn af yfirvegun og þakklæti: \"Eftir að ég kom heim í dag og var að hugsa til baka um síðasliðna viku þá rann það upp fyrir mér að þannig er þessu einnig farið á spítalanum, ein liðsheild , eitt markmið.\" Og hann hefur uupplifað margt síðustu daga lífs síns: \"Undir ótrúlega erfiðum aðstæðum (búin að sjá þetta) spilar lið heilsugæslunar sinn lækningarbolta af þvílíkri þolgæði , þar sem bataboltinn gengur frá manni til manns, dag eftir dag, viku eftir viku og ekkert gefið eftir, hvort sem það skurðlæknateimið sem spilar fremst, svæfingalæknirinn með þeim á kantinum, taka hjúkrunafræðingarnir við boltanum senda hann áfram upp á deild í umönnun þar sem fólk kemur til sjálfs síns og það fyrsta sem maður sér þegar maður vaknar þar er bros og mildi, sjúkraliðar stöðugt á þönum, svara hverju kalli stöðugur hundrað prósent fókus eins og í góðum landsleik nema að þarna er spilað með kærleik og velvild skilyrðislaust til allra sem þarna liggja.\"

Og Tolli hugsar með hlýhug til baka: \"Sífellt koma nýir sjúklingar um leið og einhver brottskrifast og ekki haggast liðsheildin þrátt fyrir að fólk þurfi að vaða í purpurarauðum sótthreinsiglussa sem hellt er í handklæði við þröskuld sumra herbergja til að fyrirbyggja veirur sem eru að herja á laskaðan spítalann okkar.
Okkar landslið í dag er starfsfólk heilsugæslunnar sem nær að negla boltann aftur og aftur í bláhornið á batabrautinni. Þetta er landsliðið okkar,\" skrifar listamaðurinn, nýkominn heim af Landspítalanum.