Samtök verslunar og þjónustu segja að samkomulag stjórnvalda við Evrópusambandið um landbúnaðarmál þýði að neytendum standi til boða meira úrval af landbúnaðarvörum á samkeppnishæfu verði hér á landi.
Samningar millum Evrópusambandsins og íslenskra stjórnvalda um viðskipti með landbúnaðarvörur sem rýmkar inn- og útflutning beggja aðila til muna hefur vakip mikla athygli hér á landi og verið fagnað af mörgum hagsmunasamtökum í verslun, svo og af Bændaamtökunum sjálfum. Af yfirlýsingum íslenskra stjórnvalda má ráða að um er að ræða verulega breytingar frá því sem núverandi samningar aðila kveða á um, segir til dæmis í tilkynningu frá Samtökum verslunar og þjónustu.
\"Samkvæmt yfirlýsingum ráðamanna fela samningarnir í sér að Ísland fellir niður tolla á yfir 340 nýjum tollskrárnúmerum og lækkar tolla á yfir 20 öðrum og almennt gerir ESB slíkt hið sama. Niðurstaðan felur í sér að allir tollar á unnar landbúnaðarvörur eru felldir niður nema á jógúrt. Sem dæmi munu tollar falla niður á súkkulaði, pizzum, pasta, bökunarvörum o.fl. Auk þessa eru tollar felldir niður eða lækkaðir á óunnum landbúnaðarvörum eins og t.d. villibráð, frönskum kartöflum, útiræktuðu grænmeti o.fl. Þá tekur samningurinn einnig til annarra kjötvara, sbr. pylsur, álegg o.s.frv.