Felldir verða niður tollar á 340 tollskrárnúmerum, þar á meðal súkkulaði, pizzum, pastabökunarvörum og fleira. Einnig verða lækkaðir tollar á yfir 20 öðrum tollskrárnúmerum. Hluti samkomulagsins er að hvort tveggja Ísland og Evrópusambandið auka verulega tollfrjálsa innflutningskvóta. Þeir eru meðal annars fyrir ýmsar kjöttegundir og osta.
Sigurður Ingi kvaðst vonast til að þetta hefði verulega þýðingu fyrir neytendur: \"Ef að allir taka höndum saman og verslunin skilar sínu getur þetta haft verulegan ávinning fyrir neytendur.\"
Viðræður hafa tekið tvö ár en síðasta samningalotan stóð frá í gærkvöld þar til seint í dag.
Ráðherra sagði að samráð hefði verið haft við marga meðan á viðræðunum stóð. Hann sagði að í samningunum væru fólgin tækifæri fyrir aukna framleiðslu á Íslandi og aukinn útflutning, þetta væru tækifæri sem íslenskur landbúnaður gæti nýtt sér.
Viðræðurnar sneru einnig að viðurkenningu á heitum afurða sem vísa til uppruna þeirra. Samningarnir fela því í sér að íslensk stjórnvöld skuldbinda sig til að vernda heiti afurða sem vísa til uppruna og njóta verndar innan ESB.
Samningarnir eiga að taka gildi í árslok 2016 eða byrjun árs 2017, að því gefnu að viðeigandi stofnanir hjá ESB og Íslandi staðfesti samningana.