Afstaða þingmanna til lækkunar tolla á landbúnaðarvörum er þvert á flokkslínur. Utanríkisráðherra, Gunnari Braga Sveinssyni, var í gær sérstaklega hrósað úr herbúðum stjórnarandstöðunnar.
Nokkrir þingmenn ræddu tollalækkunina fyrirhuguðu í umræðum undir liðnum Störf þingsins. Umræðan hverfðist allt frá viðvörunarorðum Bjarkeyjar Gunnarsdóttur, VG, sem ræddi óánægju bænda og þau ummæli formanns Bændasamtakanna að samningurinn væri án aðkomu Bændasamtakanna sem væri óheppilegt.
Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, tók þveröfugan pól í hæðina og hrósaði Gunnari Braga Sveinssyni utanríkisráðherra sérstaklega fyrir að klára málið. Upphaf samninganna hefði orðið í stjórnartíð Össurar Skarphéðinssonar sem utanríkisráðherra. Neytendasamtökin fögnuðu samningnum. Matvælaverð hér á landi væri alt of hátt. Hvatti Valgerður Bjarnadóttir stjórnina til frekari dáða í að afnema enn fleiri tolla af landbúnaðarvörum, enda væru þeir ekki síður íþyngjandi en tollar sf skóm og fatnaði.
Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins, benti á að áfanginn hefði aldrei náðst nema vegna þess að Ísland hefði haft skiptimynt í samningnum. Næsta skref væri að upplýsa um verðmyndun á Íslandi.