Tollar lækka nú um mánaðarmótin á hundruð matvörutegunda frá Evrópu. Tollar verða einnig alveg afnumdir á sumum matvörum þar sem tvíhliða tollasamningur Íslands og Evrópusambandsins tekur nú gildi.
Afnumdir eru tollar af t.d. súkkulaðivörum, ýmsu kexi og brauði, pitsum og bökum, fylltu pasta, bollasúpum og þannig mætti áfram telja. Oftast er um magntolla að ræða, það er, fasta krónutölu sem leggst á hvert kíló viðkomandi vöru. Þeir tollar geta numið allt frá 5 kr./kg og upp í 110 kr./kg.
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segir að þess megi vænta að tollabreytingarnar lækki verð á viðkomandi vörum, þótt verðlækkunin verði í ýmsum tilvikum ekki mikil. Lækkun um 30 prósentustig á tolli á franskar kartöflur ætti þó til dæmis að skila sér í talsverðri verðlækkun, eða upp á allt að fimmtungi útsöluverðs. Ólafur segir nauðsynlegt að hafa í huga að það taki einhvern tíma fyrir verðlækkanir að koma fram; birgjar eigi enn birgðir af vörum sem búið sé að tolla og einnig verði að horfa til áhrifa gengisbreytinga og fleiri þátta. Þá falli tollar aðeins niður af vörum sem fluttar eru inn frá ESB-ríkjum. „Þetta er jákvætt skref í átt til aukinnar fríverslunar og við hvetjum okkar félagsmenn til að skila þessum lækkunum áfram til neytenda,“ segir Ólafur.
Tollar á kjöti og mjólkurvörum lækka þó ekki við gildistöku samningsins. Hins vegar stækka tollfrjálsir innflutningskvótar fyrir kjötvörur og osta smám saman á næstu fjórum árum og má gera ráð fyrir að það skapi aukna samkeppni við innlenda framleiðslu, sem leiða muni til verðlækkana.
„Það er fráleitt að tala um þessa tollkvóta sem ógn við íslenskan landbúnað, eins og gert var í ályktun Búnaðarþings, þar sem hvatt er til þess að tollasamningnum verði sagt upp,“ segir Ólafur Stephensen. „Þetta er afskaplega hófleg samkeppni, sem hvetur íslenskan landbúnað engu að síður til að gera betur, bæði hvað varðar verð og vöruúrval”, er haft eftir Ólafi á vefsíðu Félags atvinnurekenda.