Tól voru notuð við meinta nauðgun

Í skýrslu ann­ars brotaþola hjá lög­reglu í umtöluðu kyn­ferðis­brota­máli í Hlíðunum frá því í októ­ber kem­ur fram að ann­ar meintra gerenda hafði bundið hend­ur henn­ar sam­an með keðju. Þá hafi hann slegið hana með svipu.

Þetta staðfesta heim­ild­ir Frétta­blaðsins að því er fram kem­ur á forsíðu blaðsins í dag.

Þar seg­ir að lög­regl­an hafi lagt hald á svipu og keðju við hús­leit í íbúð í Hlíðunum en umráðamaður íbúðar­inn­ar er ann­ar tveggja manna sem hafa verið kærðir fyr­ir kyn­ferðis­brot. Sá er á fer­tugs­aldri og starfar á hót­el­inu Reykja­vík Mar­ina. Hann hef­ur verið send­ur í leyfi á meðan rann­sókn máls­ins stend­ur yfir. 

\"Þetta er ekki í sam­ræmi við lýs­ing­ar míns manns,“ seg­ir Bjarni Hauks­son verj­andi ann­ars meints gerenda. Vil­hjálm­ur Vil­hjálms­son, verj­andi hins, seg­ir skjól­stæðing sinn hvorki kann­ast við að hafa bundið stúlk­una og hvað þá slegið hana með svipu, sam­kvæmt fyrrgreindri frétt blaðsins.