Tökum ofan fyrir gunnari braga

Man ekki betur en afi minn og nafni hafi eitt sinn lætt því inn í mín útsperrtu eyru að til væru tvenns konar stjórnmálamenn; þeir sem tylldu í ístaðinu og þeir hinir sem finndu ekki festuna. Og eftir því væri nú reiðlagið, lagsmaður, benti hann mér á, þrautreyndur framsóknarmaðurinn, ævina á enda, en blessuð sé minning hans.

Því er þetta rifjað upp að annar framsóknarmaður, fullfrískur og sprellifandi, hefur vaxið svo mjög í áliti á síðustu misserum að eftir er tekið, en þó ef til vill og einkanlega utan eigin flokks og ríkisstjórnar.

Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra er sigurvegari stjórnmálanna ef horft er til síðasta árs, hafi keppni í hinni pólitísku kúnst á annað borð farið fram. Vel má vera að þann sigur greiði hann fullu verði með einangrun í eigin flokki og kjördæmi - og nái ekki frekari pólitískum frama að afloknu yfirstandandi kjörtímabili, en þá má hann líka una við einhverja bestu umsögn sem stjórnmálamaður getur fengið; að vinna af heilindum fyrir þjóð sína og hvika þar hvergi.

Vel má vera að einhverjir hafi brosað í kampinn þegar tiltölulega reynslulaus Gunnar Bragi var valinn til forystu í utanríkismálum þjóðarinnar við ríkisstjórnarskiptin vorið 2013 - og efalítið hafa sumir þeirra sem halda um hina raunverulegu valdatauma í landinu hugsað sem svo að hér væri kominn sveitamaður sem léti vel að stjórn.

Þeir hinir sömu eru nú gáttaðir; hafa varla í annan tíma verið jafn forviða á því að stjórnmálamaður kikni ekki í hnjánum gagnvart heimtufreku auðvaldinu sem kann þá kænsku öðrum betur að stjórna með brauðmolum.

Gunnari Bragi hefur vaxið ráðherra mest í þeirri ríkisstjórn sem nú situr að völdum. Hann á skilið ómælda virðingu fyrir að taka þjóðarhagsmuni - og þar með talda langtímahagsmuni - fram yfir þá stundarhagsmuni, sérgæsku og sérhlífni sem kumrar í röðum valdamesta fólks á Íslandi sem á sjávarauðlindina með ugga og sporði og hefur efnast ævintýralega á evrópskan mælikvarða á undanliðnum árum og greitt sér hundruð milljarða í arð á meðan það skammtar samfélaginu smávægilega styrki til íþrótta og kórstarfs, en er svo horfið úr byggðarlaginu ef því sýnist, ábyrgðarlaust með öllu þegar kemur að vinnu og velferð venjulegra landsmanna, hringinn í kringum landið.

Afi gekk með hatt. Ég geng með hatt. Á báðum tilverustigunum tökum við hann ofan fyrir þeim alvöru stjórnmálamanni sem Gunnar Bragi Sveinsson er.