Tökum norðurland til fyrirmyndar

Ég má til með að gefa Norðurlandi og þá sérstaklega Akureyri eitt high five !

Nú skruppum við þangað í dagsferð til þess að sækja efni í þætti hérna á Hringbraut og var margt fróðlegt sem kom úr þessari skemmtilegu heimsókn (sjá í næstu þáttum af Súrefni og Smakk/Takk). 

Það sem vakti hjá okkur aðdáun og verðskuldaða athygli var samt sem áður að á Akureyri var nánast engin traffík. Í þessu tæplega 20.000 manna sveitarfélagi og töluvert styttri vegalengdir stóð Akureyrarbær ekki frammi fyrir stóru vandamáli varðandi traffík, en samt sem áður vildi bærinn draga úr mengun og koma til móts við bæjarbúa. Ákveðið var árið 2007 að leggja niður strætó fargjöld og notast þeir við metan knúna strætisvagna. Góðan daginn og gleðileg jól, þeir fimmfölduðu farþegafjölda vagnanna á nokkrum árum! 

Setjum þetta saman - frítt í strætó í Reykjavík. Fimmföldun farþegafjölda sem nýtir sér almenningssamgöngur og umhverfisvænar í þokkabót. Þetta hlýtur að vera vænlegasta og fljótlegasta lausnin á umferðarvandanum sem í höfuðborginni er. Og jafnvel líka tímabundin aðgerð á meðan varanlegri lausnir eru í framkvæmd.  

\"\"

Svo mæli ég að sjálfsögðu með að fólk fari að smyrja keðjurnar og hjóli frá a-b. Það er svo hollt og gott..

 

**Snædís**