Flokkur fólksins sópar til sín fylgi í skoðanankönnun MMR. Þessum flokki tekst að ná til þeirra sem aðrir flokkar ekki ná til. Þetta er Jónasi Kristjánssyni fyrrverandi ritstjóra tilefni til færslu á vefsíðu hans í gær.
Jónas skrifar að Flokkur fólksins sýnist hafa náð þeim markaði í pólitík sem flokkur Gunnars Smára Egilssonar sóttist eftir en fékk ekki og er einnig það fólk sem Sjálfstæðisflokkurinn hatar skrifar Jónas.
Samanlagt getur þetta fólk orðið nokkuð fjölmennt. Jónas lýkur skrifum sínum með þeim orðum að áhugavert verður að sjá hvar Flokkur fólksins dúkkar svo upp í pólitíska mynstrinu.
Nánar www.jonss.is