Tók við fyrirtækinu 23 ára

FKA, eða Félag kvenna í atvinnulífinu heiðraði í gær, átjánda árið í röð, þrjár konur sem þykja hafa skarað framúr í íslensku atvinnulífi. Guðrúnu Hafsteinsdóttir hlaut aðalviðurkenningu þessara stóru samtaka. Guðrún er einn eigandi og markaðsstjóri Kjöríss, formaður Samtaka iðnaðarins og varaformaður Samtaka atvinnulífsins og er að auki stjórnarformaður Lífeyrissjóði verzlunarmanna. 

Guðrún ræddi í gær í Þjóðbraut meðal annars hvaðan sú þörf kemur að greiða öðrum konum leið og hvað uppeldið gaf henni svo hún er núna einn helsti stjórnandi landsins og ekki síður hvernig henni leið að taka skyndilega við fjölskyldufyrirtækinu.

Ferill hennar hófst þegar hún var aðeins 23 ára við skyndilegt fráfall föður hennar og tók hún við að stýra fjölskyldufyrirtækinu í Hveragerði, Kjörís og hvarf frá fyrri ætlunum sínum um að setjast á skólabekk í háskóla.

 Í rökstuðningi dómnefndarinnar segir m.a. að Guðrún sé „óþreytandi við að hvetja konur til að láta til sín taka á sem flestum sviðum þjóðlífsins”