Vangaveltur eru uppi um að Kim Jong-un leiðtogi Norður Kóreu hafi tekið lest til Beijing í Kína og sé þar í leynilegri heimsókn.
Vitað var að háttsettur fulltrúi frá Norður Kóreu hefði komið í heimsókn til höfuðborg Kína með opinberri járbrautarlest frá Norður Kóreu. Nú bendir sífellt meira til þess að umræddur fulltrúi sé enginn annar en leiðtoginn sjálfur.
Þetta væri fyrsta erlenda heimsókn Kim Jong-uns síðan hann tók við embætti árið 2011.
Stjórnvöld í Suður Kóreu segjast ekki vita hvort um Kim Jong-un er að ræða en að þau fylgist náið með stöðunni.
Enn hefur ekkert heyrst opinberlega frá hvorki kínverskum, né suður kóreskum stjórnvöldum um málið. en ef rétt reynist er um mikilvæga þróun mála að ræða.