Tobba Marínós opnar sig upp á gátt í forsíðuviðtali við Mannlíf sem kom út á föstudaginn. Hún segir að jólin geti verið erfiður tími fyrir fjölskyldur sem syrgja og þar sé hún og hennar fólk engin undantekning. Hún missti systur sína, Regínu, árið 2016.
Systkinin voru fjögur og var Regína næstyngst en hún lést í maímánuði fyrir rúmum þremur árum. Regína varð bráðkvödd á heimili foreldra þeirra og kom Tobba að systur sinni.
„Þetta er eitthvað sem maður er enn þá að vinna úr og langt í það að ég geti mikið rætt það. En ég get sagt að síðan hún dó er lífið verra og verður verra og maður sjálfur verri. Það er eiginlega engin leið til að lýsa því, þetta er bara svarthol.“
Hún segir að suma daga líði henni betur en síðan eigi hún það til að sökkva ofan í myrkrið sem fylgi sorginni og söknuðinum.
„Mér finnst svo skrýtið hvað fólk virðist eiga erfitt með að skilja það. Ekkert mjög löngu eftir að systir mín dó var fólk farið að spyrja hvort mamma og pabbi væru eitthvað að koma til. Eins og þau hefðu fengið flensu. Það er alveg sturlað.“
Tobba heldur áfram:
„Það er ekkert hægt að mæla sorg í mánuðum eða árum. Ég hef farið í sálfræðimeðferðir og svo framvegis og reynt að stytta mér leið eins og hægt er, en það virkar ekki. Foreldrar mínir hafa staðið sig ótrúlega vel og við reynum öll að hjálpast að við að komast í gegnum þetta, ekki síst á þessum tíma í kringum jólin.“
Hér má lesa viðtalið í heild sinni.