Tobba marinós og kalli hjá völu matt

Ofurparið Karl Sigurðsson og Tobba Marinós skella sér bak við eldhúseyjuna í þætti Völu Matt á Hringbraut í kvöld og hrista þar fram úr erminni dýrindis mat eins og þeim einum er lagið.

Þættir Völu hafa vakið verðskuldaða athygli, enda formið skemmtilegt, því þar keppa þátttakendur um að reiða fram hollan, góðan og fljótlegan mat á sem ódýrastan hátt, jafnt aðalrétt sem eftirrétt.

Það eru svo matgæðingarnar Albert Eiríksson og Gunnar Helgason sem hjálpa Völu að dæma réttina í lok hvers þáttar - og engu þeirra leiðist sá starfi eins og vel sést á skjánum að vanda.

Keppnin: Besti Maturinn er á dagskrá Hringbrautar klukkan 20:00 í kvöld - og verði ykkur að góðu.