Fjölmiðlakonan Tobba Marinósdóttir skrifaði áhugaverðan pistil í Fréttablaðinu í dag þar sem hún lýsir erfiðleikum þess að vera með lifandi tré í stofunni yir jólahátíðina.
Í pistlinum lýsir Tobba því hvernig barrnálar fuku í augun á börnunum eftir að háaldraðar frænkur sem fengu tilmæli um að snerta ekki tréð stóðust ekki freistinguna og gripu i hálf dauða normannshræið.
„Háaldraðar frænkur tóku í spaðann á hálf dauðu normannshræinu og hristu það þannig að barrnálar fuku í augu barnanna sem voru einmitt í augnhæð við hræið. Það er fátt sorglegra en sjö ára gamalt barn með blóðhlaupin augu.
Ég var farin að hata helvítis tréð svo löðrandi heitt að ég sá það í hillingum að draga það út á miðnætti á gamlársdag, saga það í búta og brenna í kamínunni.“
Um leið velti Tobba því fyrir sér hvort að hún væri búin að gleyma öllum vandræðunum sem fylgja lifandi jólatrjám fyrir næstu jól.