Tobba: ekki ólétt eftir loga

Tobba Marinós rithöfundur tók það skýrt fram í þættinum Kvennaráðu á Hringbraut í gærkvöld að hún væri ekki ólétt eftir Loga Bergmanna Eiðsson og hafi aldrei verið. Kjaftasögur og slúður voru umræðuefni þáttarins sem sagan segir að landsmenn leggi svo mikla áherslu á í daglegu tali að líkja megi viðp þjóðaríþrótt.


Atli Fannar Bjarjkason ritstjóri Nútímans var einnig gestur Bjarkar Eiðsdóttur í þættinum og sagði að kjaftasögum hefði ekki endilega fjölgað með tilkomu samfélagsmiðlanna; þær væru einfaldlega meira uppi á yfirborðinu en áður og fjölmennari hópi aðgengilegar.


Bryndís Björgvinsdóttir rithöfundur og þjóðfræðingur sagði í þættinum að það væri allt eins mikill áhugi á að fylgjast með niðurleið fræga fólksins en uppleiðinni. Þannig hefði það jafnan verið en kæmi fram með æajkafi hætti nú um stundir eftir tilkomu samfélagsmiðla.