Tjáir sig ekki um niðurlægðu stúlkuna

„Lögreglustjóri mun ekki tjá sig um málið í fjölmiðlum en hefur tekið málið til sérstakrar skoðunar.“

 Svo segir í sérstakri tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi eftir að Fréttablaðið sló því upp í morgun að í ágúst sl. hefði 16 ára stúlka verið afklædd af lögreglu og látin beygja sig fram á meðan lögregluþjónn skoðaði rass og kynfæri að fenginni nafnlausri ábendingu um að fíkniefni kynnu að leynast í bíl sem stúlkan var í.

Stúlkan hefur nú stefnt íslenska ríkinu en enginn fótur reyndist fyrir broti eða meðferð þeirri er hún varð að sæta af hálfu lögreglu á Vesturlandi.

Hvorki var haft samband við foreldra stúlkunnar, né barnavernd. 

 „Það er regla að sá lögreglumaður sem framkvæmir líkamsleit á einstaklingi sé af sama kyni og sá sem leitað er á.   Svo var í því máli sem fjölmiðlar fjalla nú um,“ segir lögreglan á Vesturlandi en tjáir sig ekki frekar sem fyrr segir.

Hneykslismál hafa hrannast upp hjá lögregluembættum landsins undanfarið og ber þar hæst grun um spillingarmál á höfuðborgarsvæðinu.