Tíundi hver landsmaður innflytjandi

Ísland er í 89. sæti af 232 ríkjum heims þegar kemur að hlutfalli innflytjenda sem þar búa. Rúmlega 10% landsmanna eru innflytjendur. 

Kjarninn greinir frá þessu. Um er að ræða gögn Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2013 um hlutfall innflytjenda í ríkjum heimsins. Á toppi listans trónir Vatikanið en íbúar ríkisins eru allir innflytjendur. Í öðru sæti má finna Sameinuðu arabísku furstadæmin, en þar hlutfall innflytjenda tæplega 84%. 

Bandaríkin, sem gjarnan eru kölluð ríki innflytjenda, eru töluvert neðar á listanum. Samkvæmt tölum Sameinuðu þjóðanna er hlutfall innflytjenda þar í landi rúmlega 14% sem staðsetur Bandaríkin í 68. sæti af 232 ríkjum heims. Bretland er í 75. sæti, en rúmlega 12% íbúa landsins fæddust í öðru landi. 

Sé horft á önnur Norðurlönd er ljóst að hlutfall innflytjenda er minnst í Finnlandi en þar eru 5,4% íbúa landsins innflytjendur. Hæst er hlutfallið í Svíþjóð, tæplega 16% og þar á eftir kemur Noregur með tæplega 14%. Danmörk og Ísland eru á svipuðu reiki; í kringum 10% íbúa eru fæddir í öðru landi.

Athyglisvert er að sjá ríkin sem reka lestina á listanum. Þar má finna ríki á borð við Kína, Indónesíu, Víetnam og Kúbu, en þar er hlutfall innflytjenda 0,1%.