Tíu tonna sprengjuflikki varpað

Tíu tonna þungu sprengjuflikki var í gær varpað á jarðhýsi vígamanna í Hvítufjöllum í norðaustur Afghanistan. 

Þarna voru að verki sérsveitarliðsmenn bandaríska landhersins en þeim eru fengin verk af þessu tagi. 

Fréttastofur í Bandaríkjunum lýsa þessu sprengjuflikki í smáatriðum og af þeim lýsingum að dæma  er þetta sprenguflikki nánast gereyðingarvopn.

Frá Afghanistan berast þau tíðindi að mannfall í liði vígamanna hafi verið nokkuð mikið. Þessi eina sprengja hefur þó tæpast snúið við vígstöðunni vígamönnum í óhag. Reyndar er staðhæft núna að enginn hafi fallið í árásinni. 

Sérfræðingar gæla við þá hugmynd að þessi aðgerð Bandarikjanna sé hugsuð sem skilaboð til ráðamanna í Norður-Kóreu.

Fyrr í dag mátti skilja fréttaflutning í Kína á þann veg að allar líkur séu á árás Bandarikjanna á þau jarðhýsi og þá kjallara í Norður-Kóreu þar sem eldflaugar og gereyðingarvopn herafla Norður-Kóreu eru sögð geymd.

Bandaríska sprengjuflikkið sé vopn af því tagi sem vel sé brúklegt gegn öllum neðanjarðageymslum Norður-Kóreumann.

Fréttastofur í Asíu telja nánast víst að árásir Bandarikjanna á skotmörk í Norður-Kóreu séu á næsta leiti og jafnvel innan fárra daga. Árásin á skotmarkið í Hvítufjöllum hafí verið einskonar forsmekkur af því sem koma skal.

 

Nánar www.mbl.is  www.ruv.is www.bbc.com