Tíu þúsund króna sekt bíður fjölda aðstandenda útskrifarnema

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sektað bíla í stórum stíl við Laugardalshöll þar sem nú fer fram brautskráning fjölda nemenda frá Háskóla Íslands.

Fréttablaðið greinir frá.

Lögreglan hefur gengið á milli bíla sem lagðir eru ólöglega og sektað þá.

Ljóst er að tíu þúsund króna sekt bíði nú fjölda aðstandenda útskriftarnema sem fagna í Laugardalshöll í dag.

Alls fóru tvær brautskráningar fram í dag en þetta er í fyrsta sinn í tvö ár sem gestir fá að vera viðstaddir við athöfnina.