Tíu samþykkt að greiða miklu meira – ellert: „myndi skila „vandræðalegri“ niðurstöðu að kæra

Ellert B. Schram er formaður Félags eldri borgara í Reykjavík. Hann greinir frá því í Morgunblaðinu að tíu manns hafi nú samþykkt að greiða miklu hærra verð en samið var um í byrjun. Ellert segir að fólk hafi rétt á að fara með málið fyrir dómstóla, kveðst hann skilja óánægju sumra en bætir við að slík málalok yrðu „vandræðaleg“ og „hörmuleg“.

Hringbraut fjallaði um opið bréf sem Hrefna Lind Ásgeirsdóttir skrifaði vegna stöðunnar sem upp er komin. Forsaga málsins er sú að foreldrar Hrefnu festu sér kaup á íbúð í Árskógum í Breiðholti sem  Félag eldri borgara (FEB) lét byggja fyrir félagsmenn sína. Margir eldri borgarar eru sárir og svekktir og í miklum vandræðum eftir að í ljós kom að gamla fólkið er nánast kúgað til að borga allt að sjö milljónum meira en samið var um í fyrstu. Hrefna segir að foreldrar hennar séu krafðir um auka sex milljónir til að fá lykla afhenta, þrátt fyrir að hafa skrifað undir kaupsamning löngu áður. Í stað þess að sofa í nýju íbúðinni sofa þau á dýnum í herbergi barnabarnanna. Þá eru þau einnig húsnæðislaus eftir að hafa selt sína íbúð.

Forsaga málsins er sú að foreldrar Hrefnu festu sér kaup á íbúð í Árskógum í Breiðholti sem  Félag eldri borgara (FEB) lét byggja fyrir félagsmenn sína. Hringbraut hefur áður fjallað um málið en margir eldri borgarar eru sárir og svekktir og í miklum vandræðum eftir að í ljós kom að gamla fólkið er nánast kúgað til að borga allt að sjö milljónum meira en samið var um í fyrstu. Hrefna segir að foreldrar hennar séu krafðir um auka sex milljónir til að fá lykla afhenta, þrátt fyrir að hafa skrifað undir kaupsamning löngu áður. Hrefna segir:

„Degi eftir loka afhendingardag samkvæmt þinglýstum kaupsamningi, boðaði félagið þau á fund. Þar var þeim tilkynnt að ekki yrði að afhendingu íbúðarinnar nema þau skrifuðu undir einhliða viðauka við kaupsamning þess efnis að verð íbúðarinnar hækkaði um rúmar 6 milljónir króna og fengju þá lyklana afhenta samdægurs eða féllu frá kaupunum.“

Fundað verður um málið í dag. Ellert segir í samtali við Morgunblaðið og bætir við að Félag eldri borgara hafi gert mistök. Ljóst er að Ellert og félagar ætla eins og sakir standa að láta gamla fólkið þjást vegna þeirra. Þá segir hann eins og kemur fram að ofan að fara með málið fyrir dómmyndi skila vandræðalegri og hörmulegri niðurstöðu.