Tíu ára samningur loks fullgildur

Alþingi samþykkti í gær með þingsályktunartillögu að fullgilda samning Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólk (SRFF). Samningurinn felur í sér skyldur aðildarríkja til þess að tryggja réttindi fatlaðs fólks til jafns við aðra. Samningurinn, sem orðinn er um það bil 10 ára gamall, var undirritaður af hálfu íslenska ríkisins þann 30. mars 2007. Biðin eftir fullgildingu hefur verið löng. Dagurinn í dag er því mikill gleðidagur, segir í tilkynningu frá Öryrkjabandalaginu í dag. Ellen Calmon, formaður Öryrkjabandalagsins er gestur á Hringbraut í kvöld og ræðir nánar um hverju þessi samningur breyti í raun.