“titraði og skalf”

Jóhann Vilhjálmsson er útlærður byssu og hnífasmiður frá Belgíu og fremstur manna í því hér á landi. Hann segir að siðfræði verði að vera við veiðar. Góðir veiðimenn séu þeir sem hafi mikla siðferðiskennd. 

Jói, eins og hann er bara kallaður er færasti byssu og hnífasmiður landsins og hefur sitt verkstæði og verslun við Dalveginn í Reykjavík. Hann smíðar og gerir við byssur, smíðar byssur og skot og kennir fólki hér á landi að fara með skotvopn og að virða bæði náttúru og dýr. Hann segir að mikilvægt sé að virða reglur um veiðar, hvar sem er í heimi.

Jóhann fer mikið til Ungverjalands, Póllands og svo Afríku og hefur sjálfur skotið m.a. sebrahest og skógarbjörn sem hann segir að hafi ekki smakkast vel. Í þeirri veiðiferð hafi hann titrað og skolfið af hræðslu við björninn.