Tískubylgja til stuðnings Úkraínu í kvöldfréttum RÚV?

Í kvöldfréttum RÚV í kvöld mátti sjá áhugavert fataval viðmælenda.

Líkt og flestir ættu að vera meðvitaðir um eru fánalitir Úkraínu blár og gulur. Vegna innrásar Rússa í Úkraínu hafa þessir tveir litir verið áberandi víða til þess að sýna landinu stuðning, bæði hérlendis sem og erlendis. Þar má nefna mannvirki sem hafa verið lýst upp eða klædd borðum í litunum tveimur.

Þessir tveir litir voru til að mynda áberandi í kvöldfréttunum í kvöld, en bæði Hildur Björnsdóttir, nýkjörinn oddviti Sjálfstæðisflokksins, og Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, klæddu sig í blátt og gult.

Líklega er ekki um tilviljun að ræða, en báðir litirnir voru áberandi í klæðnaði beggja aðila. Þau eru því líklega að reyna að sýna Úkraínu stuðning með klæðaburði sínum.

Hægt er að velta fyrir sér hvort um sé að ræða einhverskonar tískubylgju.