Söngkonan Regína Ósk segir frá því í þættinum Lífsins list á Hringbraut í gærkvöld þegar hún var fengin til að syngja á hátíð íslenskra bankamanna árið 2007. Henni var flogið til Mónako og ekkert til sparað. Það kom henni verulega á óvart þegar í ljós kom að engin önnur en stórstjarnan Tina Turner kom í einkaþotu frá Sviss og ,,hitaði upp” fyrir Regínu Ósk.
Ekki er vitað hvað herlegheitin kostuðu en frammistaða Tinu var ógleymanleg og her manna gætti þess að enginn kæmist að stjörnunni þar sem hún var í næsta búningsherbergi við Regínu Ósk. Fleiri sögur af Tinu Turner og íslenskum söngkonum koma við sögu í þættinum. Og Friðrik Ómar tekur lagið með fjórum Tinu Turner, sem eru þó í fölara lagi miðað við sjálfa goðsögnina.
Í þættinum, sem var frumsýndur klukkan 21.30 í kvöld var líka gengið um Hljómskálagarðinn með konum sem standa að fölskyldudagskránni Göngum saman á Mæðradaginn til að safna fyrir grunnrannsóknum íslenskra vísindamanna á bróstakrabbameini og þá varr myndlistarkonan og förðunarfræðingurinn Helma Þorsteinsdóttir einnig heimsótt. Umsjón þáttarins er í höndum Sirrýjar og Friðþjófur Helgason er myndatökumaður.
Þátturinn er endursýndur í kvöld klukkan 21:30, en einnig sjáanlegur á hringbraut.is.