Tíminn vinnur ekki með ksí

Ekkert hefur enn spurst út um viðræður KSÍ við nýjan landsliðsþjálfara. 

Thierry Henry hefur gefið það út að hvorki hann né hans fólk hafi átt í viðræðum við félagslið eða knattspyrnusamband, en orðrómur hefur verið á kreiki um að hann hafi áhuga á að þjálfa landslið. Það bendir því ekkert til þess að hann verði næsti landsliðsþjálfari Íslands. 

Tíminn vinnur ekki með Knattspyrnusambandinu, en í dag eru 37 dagar í næsta leik landsliðsins, sem keppir við Sviss ytra 8. september og bronslið Belga hér heima 11. september.