Tíminn er sturlaður eða á sterum

\"Árið 2026 verð ég 45 ára sem er tiltölulega ungur aldur. Ég er hins vegar farinn að búa mig undir það að þurfa að upplifa geimskot frá Grasagarðinum og metvinsældir þjóðkirkjunnar það ár.\"

Þetta skrifar Tryggvi Haraldsson, einn pistlahöfunda Hringbrautar í dag og bætir jafnharðan við. \"Ég hef engu að síður trú á því að við verðum ennþá að ræða ríkiseinokun á áfengi og listamannalaun. Ef ekki, þá verð ég fyrir vonbrigðum.\"

Tilefni skrifa Tryggva eru þær öru breytingar sem orðið hafa í samfélaginu síðustu árin, en þær eru sterakenndar að hans mati: \"Ég ímynda mér oft að sjá fram í tímann og í sannleika sagt hefur mér aldrei langað meira að sjá 10 ár fram í tímann en einmitt í dag,\" skrifar hann og spyr hver hefði trúað því árið 2006 að t.d. stjórnmálaafl sem kallaði sig sjóræninga væri að rúlla upp hverri skoðanakönnuninni á fætur annarri og væri rúmum 10% vinsælli en sjálfur Sjálfstæðisflokkurinn þegar ár væri í kosningar: \"Árið 2006 var ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks ein sú þaulsetnasta í sögunni og svo virtist sem fjórflokkurinn væri vinsælli en leiðtogi Norður-Kóreu, en 90% þingssæta voru skipuð fólki úr fjórflokknum árið 2006.\"

Það eru bara 10 ár frá því þetta var, minnir Tryggvi á - og það er ekki laust við að honum finnist allt einhvern veginn svo öfugsníð í dag: \"Í síðustu viku fengum við svo fregnir af því að Bandaríkjamenn sjái ástæðu til að koma hingað með njósnafaratæki þar sem Rússar séu líklega með kafbáta í kringum landið. Ef einhver hefði sagt mér árið 2006 að þetta yrði raunin eftir 10 ár þá hefði ég haldið að ég væri staddur í þættinum Tekinn með Auðuni Blöndal en hann var einmitt vinsæll það ár.\"

Já, herinn  er að koma aftur - og sjóræningjar eru vinsælli en fjórflokkurinn til samans!