Tími stóra flokksins í Reykjavík er liðinn - og kannski er það líka einmitt svo að sú gamla breiðfylking sjálfstæðismanna sem eitt sinn bjó í höfuðborginni er einfaldlega búin að flytja sig um set, út í nágrannabæina.
Þetta var mat þeirra Jóns Sigurðssonar og Svavars Gestssonar sem miðluðu heldur betur af reynslu sinni af pólitík í Ritstjórunum í gærkvöld, en báðir eru hoknir af henni eftir ráðherradóma, ritstjórn og stjórnmálaíhygli um áratugaskeið.
Í þættinum, sem er endursýndur í dag, meta stöðu Dags B. Eggertssonar og meiðreiðarfólks hans nokkuð sterka í borginni, meirihlutanum hafi tekist ágætlega upp - og þótt hann hafi vitaskuld pirrað margan manninn út af antipati á einkabílnum og farið sérstaklega í taugarnar á Hádegismóunum þá sé það ekkert endilega gott veganeesti fyrir mótherja hans að leggja af stað í borgarstjórrnarkosningarnar með klapp á bakið frá gamla foringjanum; alger lofræða úr þeirri áttinni, eins og birtist í leiðara Mogga í dag, kunni að vera tvíbent vopn í baráttunni fram undan. Jafnvel megi færa fyrir því rök að helsta og mikilvægasta verk Eyþórs Arnalds í byrjun kosningaslagsins sé að hrista stimpil Davíðs Oddssonar af sér, vilji hann vera boðberi nýrra tíma og athyglisverðra lausna.
Verkalýðspólitíkin er einnig tekin fyrir í þætti kvöldsins, en þar skín í tennur svo eftir er tekið - og það er tímabært að mati Jóns og Svavars - og loks er spurt um meint pólitískt óbragð í munni Svavars yfir samvinnu vinstri manna og íhaldsins í landsmálunum, en gamli formaður Allaballa verst þar fimlega eins og honum einum er lagið; skrítið samband at arna, vissulega, en nauðsynlegt, segir faðir heilbrigðisráðherrans.
Undir restina er svo Þorsteins frá Hamri minnst, sveitunga Svavars og viðfangsefnis Jóns í fræðimennsku fyrri tíðar, en þremenningarnir við Ritstjóraborðið í kvöld leyna ekki hrifningu sinni á borgfirska skáldinu góða.
Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:00, endursýndir í dag og eru einnig aðgengilegir á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.