Óvissa um frumvarp eyglóar

Þrátt fyrir 11 ára vinnu við breytingar á skipan almannatrygginga er enn ekki ljóst hvort frumvarp Eyglóar Harðardóttur, velferðarráðherra, verður lagt fram á þessu þingi.

Alþingismennirnir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Ásmundur Friðriksson, sem bæði eiga sæti í Velferðarnefnd Alþingis ræða við Helga Pétursson í þættinum Okkar fólk með Helga Péturssyni kl. 20:30 í kvöld.

Þau telja bæði að margt sé til bóta í frumvarpinu, en verulega þurfi að huga að því að halda fólki á vinnumarkaði eftir 67 ára aldur og það gerist ekki nema skerðingar greiðslna frá TR falli algjörlega niður.  Fyrr sé fólki engur akkur í því að stunda vinnu.