Tími forsætisráðherra að renna út

Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, segir að Björt framtíð hafi kallað eftir og bíði nú viðbragða forsætisráðherra. Þingmenn muni að líkindum gefa Sigmundi Davíð kost á að bregðast við áður en vantrauststillaga verði lögð fram í þinginu. Ekki sé líklegt að farið verði fram á að þing verði þegar kallað saman til að setja vantrauststillöguna á dagskrá. \"En tíminn er að renna út,\" segir Brynhildur í samtali við Hringbraut.

Páskaleyfi stendur yfir á Alþingi. Brynhildur segir að ef forsætisráðherra geri ekki grein fyrir sínu máli með afgerandi eða upplýsandi hætti séu líkur á að mánudaginn 4. apríl næstkomandi verði vantrauststillagan rædd á þingi að loknu páskaleyfinu.

Brynhildur segir ljóst að mjög hafi hitnað undir forsætisráðherra vegna Tortóla málsins svokallaða, það veki athygli hennar sem þingmanns að Sigmundur Davíð fái lítinn sem engan stuðning frá samstarfsflokki Framsóknarflokksins í ríkisstjórninni, Sjálfstæðisflokknum. Það segi meira en mörg orð og geri að engu samsæriskenningar um að stjórnarandstaðan sé að setja á svið pólitískt leikrit. Sjálfstæðismönnum virðist alvara málsins ljós.

Brynhildur telur mjög líklegt að sjálf muni hún sem þingmaður samþykkja vantraust á forsætisráðherra. \"Það er meiriháttar yfirsjón að hann hafi ekki upplýst um þetta í upphafi, ég skil ekkert ekkert í forsætisráðherra.\"

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir engum vafa undirorpið að Sigmundur Davíð eigi að segja af sér. Það þætti ekki umræðuefni í upplýstum lýðræðisríkjum að afsögn hans sé sjálfsagt og rökrétt skref vegna þessa klúðurs.