Eyþór í morgunblaðsarmi íhaldsins

Ég er sannfærður um að tími flokksgleraugnanna sé liðinn og að fólk hafi ekki lengur áhuga á að skoða verkefni samtímans með þeim aðferðum sem þóttu tilhlýðilegar á tímum þverlyndra stjórnmálaforingja sem fóru sínu fram án samráðs og samtals.

Þetta er tónninn í tali Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra sem er gestur Sigmundar Ernis í efnismiklu samtali þeirra í viðtalsþættinum Mannamáli á Hringbraut þessa vikuna, en þar fer hann yfir kosti sína og galla sem stjórnmálamanns, svo og árangurinn og axarsköftin. 

Hann segist vera stoltastur af því að hafa náð saman góðri liðsheild og samvinnu fjögurra ólíkra flokka í meirihlutanum sem starfað hefur á yfirstandandi kjörtímabili, en svekktastur sé hann með klúðurslega framkvæmd á bílaþjónustu fatlaðra sem illu heilli hafi verið startað um hávetur á sínum tíma, en þá hafi honum einfaldega liðið hörmulega, slíkt hafi klúðrið verið í byrjun þjónustunnar.

Og hann er líka svekktur út í sjálfan sig hvað hann hefur lítið getað sinnt börnunum sínum fjórum á síðustu árum, en þau eru á aldrinum 6 til 13 ára - og þótt full sterkt sé að segja að hann hafi vanrækt þau, þá sjái hann eftir því hvað hann hafi misst af miklum tíma með þeim.

Hann ræður um æsku sína - og nafnið á bakvið B-ið - en það segi kannski sína sögu um það hvert stefndi á fyrstu árunum að þótt hann hafi verið einna minnstur og lélegastur í vörninni hjá Fylki þá hafi hann samt verið valinn fyrirliðinn.

Hann fór í læknisfræðina til að forða sjálfum sér frá pólitíkinni - og ef og þegar hann hætti í borgarpólitíkinni þá sé landsmálapólitíkin ekkert endilega inn í myndinni, hvað þá formennska í Samfylkingunni, heldur komi þá helst til greina að snúa sér að læknisfræðinni, en vel að merkja, líkast til þurfi hann að byrja í vernduðu umhverfi innan heilbrrigðiskerfinu, svo langur tími sé liðinn frá því hann praktíseraði á þeim vettvangi.

Hann segir baráttuna í borgarstjórnarkosningunum snúast um það hvort fólk vilji nútímalegar lausnir í samkeppnishæfri borg, ellegar afturhaldslausnir í skipulags- og umferðarmálum sem Morgunblaðsarmur Sjálfstæðisflokksins sé hreinlega blindaður af, enda neiti sá armur að horfast í augu við raunveruleg verkefni borgarinnar sem eru að hlúa að kraftmiklu og fjölbreyttu atvinnulífi í áhugaverðu þéttbýli sem ungt fólk vilji vera partur af.

Mannamál er frumsýnt öll fimmtudagskvöld klukkan 20:30 og endursýnt i dag, en þátturinn er að auki aðgengilegur á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.