Gengi krónunnar er of hátt, sveiflur í gjaldmiðlinum eru alltof miklar, vaxtastigið er í engu samræmi við samkeppnislönd okkar, skattar og álögur á atvinnulífið eru íþyngjandi, lækka þarf tryggingagjald, aflétta þarf þakinu á endurgreiðslu rannsóknar- og þróunarkostnaðar í nýsköpun og hækka ætti endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu á byggingarstað íbúðahúsnæðis til að sporna við svartri atvinnustarfsemi. Úrbætur í þessum efnum eru allt of hægar.
Stöðugleiki er forsenda þess að bæði heimili og fyrirtæki geti dafnað. Starfsumhverfið þarf að vera skilvirkt og umgjörð fyrirtækja fyrirsjáanlegt til að útflutnings- og samkeppnisgreinar geti þrifist hér á landi. Orð duga ekki ein og sér. Tími verka er runninn upp.
Þetta kom meðal annars fram í ræðu Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns SI, á Iðnþingi sem fram fer í Silfurbergi í Hörpu í dag.