Ólafur Ragnar Grímsson hugleiðir nú ákaft að hætta við framboð sitt til forseta. Bæði hefur þetta komið fram á Eyjunni í spjalli við Björn Inga Hrafnsson í dag og einnig segir aðili náinn Ólafi Ragnari í samtali við Hringbraut að hann muni \"nánast örugglega\" hætta við. Hermt er að það væri ólíkt Ólafi að gefa til kynna að vending hefði skapast með framboði Davíðs vegna reynslu hans ef Ólafur ætlaði sér ekki útgönguleið.
Hent hefur verið á lofti í dag á samfélagsmiðlum og víðar hvort um plott milli Davíðs og Ólafs Ragnars kunni að vera ræða, svokölluð helmingaskipti.Ólafur fái nýja ástæðu til að hætta við, staddur í vanda vegna Panamaskjalanna, Davíð eygi afur á móti von til að skilja við Íslandssöguna sem sigurvegari eftir mörg mögur ár að loknu hruni. Davíð er maðurinn sem talinn hefur verið ein helsta ástæða efnahagshruns Íslands og ein lykilástæða bankahruns á heimsvísu skv. Newsweek. Þykja skrif hans á Morgunblaðinu benda til mikillar beiskju.
Bent hefur verið á það í dag að Ólafur Ragnar og Davíð höfði til svipaðrar gerðar kjósenda. Guðni Th. Jóhannesson og Andri Snær Magnason gætu þó hrósað happi vegna atburðarásar dagsins, hvort sem um meðvitaða fléttu er að ræða ekki, því þeir fá nú tækifæri til að markera sig sem þjóðhöfðingjar framtíðarinnar án umdeildrar fortíðar. Bæði Ólafur Ragnar og Davíð eru i hópi umdeildustu valdamanna Íslandssögunnar.
Fréttaskýring: BÞ