Tímasetning yfirlýsingar ekki tilviljun

Opinberun Önnu Sigurlaugar Pálsdóttur um skattaskjólsfélag þeirra Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar er tilkomin vegna spurninga um félagið frá blaðamanninum Jóhannesi Kr. Kristjánsssyni.
Frá þessu greinir Stundin.

Jóhannes Kr. staðfestir í samtali við Stundina að hann sé að vinna grein í samstarfi við erlend blaðamannasamtök. Fyrirspurnir um félagið hafi borist Sigmundi Davíð til eyrna fyrir helgi.

Tímasetning yfirlýsingar eiginkonu forsætisráðherra virðist því ekki tilviljun.