Ferðageirinn: 1.000 milljarðar 2030

Stjórnstöð ferðamála, sem á að leysa flækjustig ferðamála innan stjórnsýslunnar, er á meðal nýjunga í nýrri ferðamálastefnu stjórnvalda sem kynnt var í gær, en þar er boðað víðtækt samstarf stjórnvalda og ferðaþjónustunnar.
 
Grímur Sæmundsen, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir að þetta sé tímamótaskref, en hann hefur bent á að ferðaþjónustan skili líklega 350 milljörðum í gjaldeyristekjur í ár, 620 milljörðum árið 2020 og loks 1.000 milljörðum árið 2030. Það sé nánast sama upphæð og heildargjaldeyristekjur landsins verða í ár og því sé eðlilegt að stjórnvöld taki atvinnugreinina alvarlega og leggi sitt af mörkum svo hún nái að þroskast vel og skila samfélaginu tekjum inn í langa framtíð.
 
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðarráðherra vonast til að stefnan, sem kölluð er Vegvísir ferðaþjónustunnar, færi greinina inn í framtíðina, en lengi hefur verið kallað hefur eftir heildarstefnumörkun í þessari sífellt stækkandi atvinnugrein. Hún segir ferðamálastefnuna gríðarlega mikilvæga en þar sé mikil áhersla lögð á samvinnu Samtaka ferðaþjónustunnar, sveitarfélaganna og stjórnvalda: \"Ísland er að prófa eitthvað nýtt með þessu framlagi og ég vona svo sannarlega það skipti verulegu máli, einmitt vegna þess að það er svo mikið undir. Við höfum ekki tíma til að bíða lengur,\" segir hún.
 
Fram kemur í Vegvísinum að leggja eigi áherslu á  verkefni sem stuðla meðal annars að frekari dreifingu ferðamanna, náttúruvernd og aukinni arðsemi í greininni.
 
Grímur Sæmundsen formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, sem jafnframt er forstjóri Bláa lónsins, eins kunnasta ferðamannastaðar á Íslandi - og raunar í Evrópu allri - kynnti framtakið með Ragnheiði Elínu í dag, en hann segir Vegvísinn vera leiðarljós fyrir greinina til næstu fimm ára: \"Ég held að við höfum tekið hér tímamótaskerf í því að ná utan um verkefnið sem er að tryggja vöxt ferðaþjónustunnar til framtíðar“.
 

Sem fyrrr segir á að stofna á nýja Stjórnstöð ferðamanna. Hlutverkið verður að samhæfa aðgerðir og útfæra leiðir í víðtækri samvinnu víða um landið, en bent var á í kynningunni að flækjustig ferðaþjónustunnar væri gríðarmikið. Málefnin heyrðu í raun undir fjóra ráðherra, lagaumgjörð væri flókin, ábyrgð í stjórnkerfinu væri víða óljós og því væri þörf fyrir samræmingu. Ragnheiður Elín segir að einmitt vegna þessa skipti miklu máli að allir þeir sem beri ábyrð innan skipuritsins séu að vinna markvisst saman. 

Mikið hefur verið rætt um gjaldtöku og skattlagningu innan greinnarinnar síðustu ár. Í Vegvísinum er lagt er til að heimildir til innheimtu þjónustugjalda verði nýttar á áfangastöðum þar sem við á. Frekari útfærsla bíði Stjórnstöðvar ferðamála.