Hert eftirlit á landamærum Danmerkur og Svíþjóðar tekur gildi í dag og þar með verða kaflaskik í samskiptum þessara grann- og vinaþjóða, en um langt árabil hefur verið frjálst flæði fólks á milli landanna.
Eyrarsundsbrúin, milli Málmeyjar og Sjálands, sem vígð var sumarið 1999, var tákngervingur um náið samband landanna og gerði það endanlega að verkum að vinnuafl komst klakklaust milli landanna og jók raunar mjög á flæði þess yfir Eyrarsundið.
Nú er sú Snorrabúð stekkur. Breytingarnar sem tóku gildi á miðnætti merkja að fólk sem kemur með lestinni frá Svíþjóð þarf að skipta um lest og sýna þar vegabréf áður en haldið er lengra inn til Danmerkur. Sömuleiðis verða þeir farþegar sem eru að fara frá Danmörku yfir til Svíþjóðar að sýna skilríki á lestarstöðinni undir Kastrúp-flugvelli.
Um 130 starfsmenn Securitas munu sinna landamæraeftirliti á Kastrúps-stöðinni sem þýðir að mjög hægir á ferðum fólks á milli gömlu vinaþjóðanna.
Þessi herta landamæravarsla kemur til að vilja Svía sem vilja í auknum mæli stemma stigu við komu flóttamanna til landsins, en Svíar hafa tekið þjóða mest á móti flóttafólki undanfarna mánuði, eða nálega 150 þúsund manns. Nú finnst þeim mörgum sem hægja megi á þeim straumi og er hert eftirlit tekið upp í ljósi þess.