Tímamörk sett á fasteignalán

Í nýjum tillögum formanna ríkisstjórnarflokkanna sem kynntar voru í dag um nýju stuðningskerfi til íbúðarkaupa er takmarkað hve löng fasteignalánin mega vera.  Hámarkslengd verður á svokölluðum Íslandslánum, þeim lánum sem flestir taka og eru verðtryggð til 40 ára.

Lagt verður fram frumvarp um takmörkun 40 ára verðtryggðra jafngreiðslulána. Almenna reglan verður í staðinn að ekki sé heimilt að taka verðtryggð jafngreiðslulán til lengri tíma en 25 ára. Undanþágur frá því verði veittar ungu fólki,tekjulágum einstaklingum og einstaklingum sem taka lán með lágu veðsetningarhlutfalli. Þetta kemur fram í tilkynningu á stjórnarráðsvefnum. Má ætla að undanþáguhópurinn verði þegar allt kemur til alls ansi stór. Ekki kemur þó fram hvað muni teljast lágar tekjur.

Hringbraut mun ræða frekar um tillögurnar við Sigríði Ingibjörgu Ingadóttir, formann velferðarnefndar og þingmann Samfylkingarinnar og Líneik Önnu Sævarsdóttur, þingmann Framsóknar sem situr í efnahags og viðskiptanefnd Alþingis.