Tímabært að breyta

Ísland er eina landið innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) sem ekki hefur afnumið einkarétt ríkisins á sviði póstþjónustu.

Viðskiptaráð Íslands (VÍ) birtir greinargóða umsögn um þetta umdeilda mál. Þar telur VÍ tímabært að stíga skrefið til fulls með því að afnema einkarétt ríksisins. Því hvetur VÍ stjórnvöld til að huga að breyttu eignahaldi á Íslandspósti hf. enda margvíslegar áskoranir sem fylgja því að starfrækja fyrirtæki í opinberri eigu á samkepnnismarkaði.

VÍ telur að skilgreina ætti grundvallarmarkmið alþjónustu á póstmarkaði til framtíðar. Með þeim hætti að umgjörð stuðli að gagnsæi á markaði og virku sanmkeppnisumhverfi. Tryggja á viðunandi alþjónustu með lágmarkskostnaði fyrir hið opinbera og stuðla að hagkvæmum rekstri og eignahaldi á póstmarkaði. Afnám einkaréttar er fyrsta skrefið í átt að því að ofangreindum markmiðum sé náð. 

Thomar Möller hagverfræðingur er formaður stjórnar Íslandspósts og aðstoðarmaður forsætiráðherra Svanhildur Hólm Valsdóttir er varaformaður.

Ingimundur Sigurpálsson er forstjóri Íslandspósts og hefur gengt því starfi frá árinu 2004. Ingimundur hefur áratuga reynslu úr stjórnmálum og atvinnulífinu.  

 

 

 

Nánar á vef ráðsins www.vi.is

[email protected]