Tiltekt eftir verkföll tekur mánuði

Mánuði þarf til að vinda ofan af uppsöfnuðum vanda af völdum langs verkfalls lögfræðinga innan Bandalags háskólamanna hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Sömu sögu er að segja af Matvælastofnun.

Starfsmenn mættu aftur til vinnu í gær, en þeirra býðir óheyrilega mikill stafli af alls kyns erindum sem eftir á að stimpla, votta og afgreiða eftir lögformlegum leiðum. Mörg þessara mála eru afar brýn, svo sem lánasamningar vegna íbúðakaupa, en önnur mjög viðkvæm og má þar nefna útgáfu dánarvottorða. Má heita að verkefnum lögmanna hjá embættinu sé ekkert mannlegt óviðkomandi.

Ástandið er áþekkt hjá Matvælasstofnun, en þar eru maðurinn ekki aðeins undir heldur einnig dýrin stór og smá. Jón Gíslason, forstjóri Matvælastofnunar segir á visir.is að mestan tíma taka að greiða úr þeim vanda sem skapast hefur í tengslum við inn- og útflutning. \"Við erum búin að bæta við starfsfólki á inn- og útflutningsskrifstofunni. Við munum reyna að afgreiða það eins og hratt og hægt,“ segir Jón en það muni þó taka tíma enda skipti óafgreidd mál hundruðum. „Það getur tekið einhverjar vikur að koma þessu í rétt horf,“ segir Jón við vefinn.

Þar kemur fram að byrjað var að slátra nautgripum í gær eftir langt hlér. Baldur Helgi Benjamínsson, framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda, segir að von sé á nautakjöti í verslanir um næstu helgi.